Meistari annað árið í röð

Þóra Kristín Jónsdóttir átti mjög góðan leik i dag.
Þóra Kristín Jónsdóttir átti mjög góðan leik i dag. mbl.is/Óttar Geirsson

Þóra Kristín Jónsdóttir og liðsfélagar hennar í danska körfuknattleiksfélaginu Falcon eru danskir meistarar annað árið í röð eftir öruggan sigur gegn Herlev á heimavelli í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvígi dönsku úrvalsdeildarinnar í dag.

Leiknum lauk með 61:49-sigri Falcon, sem vann einvígið 3:0, en Þóra Kristín skoraði 7 stig í dag, tók 7 fráköst og gaf 8 stoðsendingar á þeim 29 mínútum sem hún lék.

Þetta er annað árið í röð sem Falcon og Þóra Kristín verða danskir meistarar en liðið vann deildarkeppnina í ár með miklum yfirburðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert