Boston Celtics komið yfir í einvíginu

Jayson Tatum og Jaylen Brown fóru fyrir sínum mönnum í …
Jayson Tatum og Jaylen Brown fóru fyrir sínum mönnum í leiknum. AFP/Tim Nwachukwu

Boston Celtics er komið í 2:1 forystu í undanúrslitareinvígi Austurdeildar NBA í körfubolta gegn Philadelphia 76ers eftir 114:102 sigur í nótt. Leikið var í Philadelphia og hefur Boston því stolið heimavallarréttinum til baka eftir að hafa tapað fyrsta leiknum í einvíginu á heimavelli.

Það þarf ekki að koma mörgum á óvart að það voru þeir Jayson Tatum og Jaylen Brown sem báru lið Boston á herðum sér í nótt. Tatum skoraði 27 stig, tók 10 fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Jaylen Brown skoraði 23 stig, tók 7 fráköst og gaf fimm stoðsendingar.

Hjá Philadelphia var Joel Embiid, nýkjörinn verðmætasti leikmaður deildarinnar, atkvæðamestur. Hann setti niður 30 stig, tók 13 fráköst og gaf 3 stoðsendingar.

Vinna þarf fjóra leiki í einvíginu til að komast í úrslit Austurdeildarinnar og verður næsti leikur spilaður næsta sunnudagskvöld kl. 19:30.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert