Landsliðsmaðurinn Elvar Már Friðriksson lék afar vel í stórsigri Rytas Vilnius á Gargzdai, 91:65, í efstu deild litháíska körfuboltans í dag.
Elvar skoraði 13 stig, tók tvö fráköst og gaf níu stoðsendingar á 26. mínútum spiluðum. Auk þess fékk hann 25 framlagsstig.
Rytas er í öðru sæti deildarinnar með 27 sigra og sex töp og hefur lokið sínum leikjum. Zalgiris Kaunas er einnig með 27 sigra en á tvo leiki eftir. Síðan taka við átta liða úrslitin um meistaratitlinn.