Eva Margrét með fínan leik í Ástralíu

Eva Margrét Kristjánsdóttir í leik með Haukum.
Eva Margrét Kristjánsdóttir í leik með Haukum. mbl.is/Árni Sæberg

Eva Margrét Kristjánsdóttir, leikmaður Keilor Thunder, spilaði vel í sigri liðsins á Kilsyth Cobras í áströlsku B-deildinni í körfubolta í morgun.

Eva Margrét sem nýgengin er til liðs við Keilor frá Haukum spilaði 31 mínútu í nótt og skoraði 9 stig, tók 7 fráköst og gaf 1 stoðsendingu.

Þetta var fjórði leikur Evu fyrir Keilor og hefur hún farið vel af stað með liðinu en með sigrinum í morgun komst liðið upp í 15. sæti í suðurhluta næstefstu deildar, NBL-1 deildinni. Liðið hefur spilað sjö leiki, unnið tvo og tapað fimm.

Eva mun snúa aftur til Hauka þegar tímabilið klárast í Ástralíu um miðjan ágúst og spila með liðinu í úrvalsdeild kvenna á næsta tímabili en Eva skrifaði einmitt undir nýjan samning við Hauka áður en hún hélt út til Ástralíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert