Óttumst ekki þeirra heimavöll

Callum Lawson sækir að körfu Tindastóls.
Callum Lawson sækir að körfu Tindastóls. mbl.is/Kristinn Magnússon

Callum Lawson, leikmaður Vals, var skiljanlega svekktur þegar hann ræddi við mbl.is eftir 82:83-tap fyrir Tindastóli í fyrsta leik liðanna í úrslitum Íslandsmótsins í körfubolta á Hlíðarenda í kvöld.

Tindastóll náði mest 21 stigs forskoti í seinni hálfleik, en Valsmenn minnkuðu muninn hratt undir lokin. Því miður fyrir Callum og félaga dugði það ekki til.

„Við verðum að gera betur og spila með þessa orku frá fyrstu mínútu en ekki bara í lokin. Við skoðum það fyrir næsta leik,“ sagði Englendingurinn við mbl.is eftir leik og hélt áfram:

Lawson hrósaði stuðningsmönnum beggja liða.
Lawson hrósaði stuðningsmönnum beggja liða. mbl.is/Óttar Geirsson

„Það tók okkur tíma að aðlagast þessum leik. Um leið og við fundum taktinn og náðum að spila okkar leik fórum við að hitta betur og komast nær körfunni. Þá fórum við að bjóða upp á góðan sóknarleik.

Við verðum að rífa okkur upp og sýna að við getum hrist af okkur mótlætið. Við verðum að vera stoltir af þeim varnarleik sem við spilum og vinna næsta leik.“

Engu liði hefur tekist að vinna Tindastól á útivelli í úrslitakeppninni til þessa og er stemningin á Sauðárkróki stórkostleg. Lawson óttast þó ekki að mæta í Skagafjörðinn. „Við verðum að spila okkar leik. Við höfum unnið þar áður og við óttumst ekki að fara á þeirra heimavöll,“ sagði hann.

Kristófer Acox fékk þungt högg frá Adomas Drungilas í kvöld og blæddi úr íslenska landsliðsmanninum. „Ég sá ekki hvað gerðist, en þetta getur gerst í hröðum körfuboltaleik, sérstaklega í úrslitum. Við verðum að eiga fyrsta höggið í næsta leik,“ sagði Lawson um atvikið.

Hann hrósaði stuðningsmönnum beggja liða eftir leik. „Þetta var ótrúlegt í kvöld og vonandi verður þetta svona út seríuna,“ sagði Lawson.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert