Phoenix Suns vann mikilvægan 121:114 sigur á Denver Nuggets í þriðja leik undanúrslita Vesturdeildar NBA í körfubolta í nótt. Leikið var á heimavelli Phoenix og minnkuðu þeir muninn í einvíginu, staðan orðin 2:1 Denver í vil.
Leikurinn í nótt var mikil skemmtun og ljóst að liðsmenn Phoenix ætluðu að selja sig dýrt. Liðið spilaði án leikstjórnandans Chris Paul sem var ekki með vegna meiðsla en það kom ekki að sök þar sem Devin Booker og Kevin Durant áttu báðir stórleik.
Devin Booker varð stigahæstur allra með 47 stig, hann tók einnig 6 fráköst og gaf 9 stoðsendingar. Kevin Durant var einnig frábær en hann skoraði 39 stig, tók 9 fráköst og gaf 8 stoðsendingar.
Hjá Denver Nuggets var Jamal Murray stigahæstur með 32 stig. Nikola Jokic átti stórleik og var með þrefalda tvennu, 30 stig, 17 fráköst og 17 stoðsendingar.
Vinna þarf fjóra leiki til að komast áfram í úrslit Vesturdeildarinnar og verður næsti leikur spilaður aðfaranótt mánudags.