Var orðið smá óþægilegt

Pétur Rúnar Birgisson fagnar með Sigtryggi Arnari Björnssyni eftir leik …
Pétur Rúnar Birgisson fagnar með Sigtryggi Arnari Björnssyni eftir leik í kvöld. mbl.is/Óttar Geirsson

„Þetta var orðið smá óþægilegt,“ viðurkenndi Pétur Rúnar Birgisson, leikmaður Tindastóls, í samtali við mbl.is eftir 83:82-útisigur á Val í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins í körfubolta á Hlíðarenda í kvöld.

Tindastóll náði mest 21 stigs mun, en Valsmenn minnkuðu muninn hratt á lokakaflanum, en gestirnir náðu að halda út að lokum.

„Þeir settu niður hvert stóra skotið á fætur öðru í lokin á meðan við vorum of hikandi og að reyna að láta tímann líða. Sama hvernig þetta endaði, er fáránlega sterkt að koma hingað og vinna leik eitt. Ég er gríðarlega ánægður,“ sagði hann.

Tindastóll vann sannfærandi 3:1-sigur á Njarðvík í undanúrslitum og Pétur sagði leikinn í kvöld framhald af því einvígi.

„Þetta var framhald af því sem við vorum að gera í seríunum á undan. Við vorum að hlaupa, að stoppa og orkustigið var stillt hátt. Við færðum seríuna við Njarðvík inn í þennan leik og við verðum að halda því áfram.“

Liðin mættust í úrslitum á síðasta ári og vann Valur þá 3:2, en allir leikir í því einvígi unnust af heimaliðinu. Tindastóli hefur afrekað eitthvað sem hvorugu liðinu tókst fyrir ári síðan.

„Þetta er lið tveggja hörkuliða. Þeir voru efstir eftir deildarkeppnina og það er sterkt að koma hingað að vinna leik eitt. Nú mætum við trylltir í næsta leik,“ sagði hann.

Uppselt var á Hlíðarenda í kvöld og voru stuðningsmenn Tindastóls sérstaklega háværir. Pétri leið eins og hann væri á heimavelli. „Það má segja það. Ég tek hatt minn ofan fyrir öllu þessu liði sem kom hingað í dag að styðja við bakið á okkur,“ sagði Pétur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert