Sá hræðsluna í augum KR-inganna

„Við förum á móti þessu sterka KR-liði, tvö ár í röð, og ég held að við höfum verið eitt þeirra liða sem var hvað næst því að stöðva sigurgöngu KR, sérstaklega þarna í fyrra skiptið,“ sagði Njarðvíkingurinn og fyrrverandi körfuknattleiksmaðurinn Logi Gunnarsson í Dagmálum.

Logi, sem er 41 árs gamall, var í lykilhlutverki í liði Njarðvíkur sem fór í tvo oddaleiki gegn KR í undanúrslitum Íslandsmótsins, árin 2015 og 2016, en eins og frægt er orðið varð KR Íslandsmeistari sex ár í röð.

„Við förum í þessa rosalegu fimm leikja seríu árið 2015, og oddaleikurinn endar í tvöfaldri framlengingu,“ sagði Logi.

„Við fáum tvö tækifæri til þess að vinna leikinn og Bandaríkjamaðurinn okkar Stefan Bonneau á tvö skot þarna á lokasekúndunum sem skrúfast bæði upp úr körfunni.

Ég man eftir að hafa horft í augun á þeim og ég sá hvað þeir voru hræddir. Þetta var tækifærið til þess að stöðva sigurgöngu KR og þetta er sá leikur sem situr einna mest í mér eftir ferilinn,“ sagði Logi meðal annars.

Viðtalið við Loga í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert