Pavel Ermolinskij, þjálfari karlaliðs Tindastóls í körfuknattleik, hefur biðlað til stuðningsmanna liðsins að einblína á jákvæðni þegar kemur að stuðningi í úrslitaeinvíginu gegn Val.
Rígurinn milli stuðningsmanna liðanna er töluverður þar sem Tindastóll á harma að hefna eftir að Valur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í oddaleik á síðasta tímabili.
Stólarnir unnu fyrsta leik einvígisins á Hlíðarenda, 83:82, eftir gífurlega spennu og var hart barist innan sem utan vallar.
Til að mynda blóðgaði Adomas Drungilas höfuð Kristófer Acox í leiknum og gæti verið í leikbanni í öðrum leik liðanna á Sauðárkróki annað kvöld vegna athæfis síns.
Í þokkabót varð Pavel Íslandsmeistari með Val á síðasta tímabili.
„Tindastólsfólk nær og fjær. Beinum orkunni í jákvæðan farveg. Þetta körfuboltalið þrífst best í gleði og stemningu. Leyfum öðrum að æsa upp. Jákvæðni á samfélagsmiðlum, kaffistofum og ekki síst vellinum,“ skrifaði Pavel á Twitter-aðgangi sínum í kvöld.