Bandaríska körfuknattleiksfélagið Cleveland Cavaliers minnist nú hins 26 ára gamla Nicks Gilberts sem lést á dögunum.
Gilbert var einungis 26 ára gamall en hann var sonur eiganda félagsins, Dans Gilberts, sem hefur verið eigandi félagsins frá árinu 2005.
Nick Gilbert glímdi við taugasjúkdóminn Neurofibromatosis en hann vakti athygli meðal annars með föður sínum þegar Cleveland varð meistari árið 2016.
Útför hans fer fram á morgun í Temple Israel-kirkjunni í Michigan í Bandaríkjunum.
It is with heavy hearts that we join the Gilbert family and the Rock Family of Companies in mourning the loss of Nick Gilbert, who passed away yesterday from complications related to Neurofibromatosis 1 (NF1). pic.twitter.com/naLti19e2l
— Cleveland Cavaliers (@cavs) May 7, 2023