Ólafur Jónas Sigurðsson, þjálfari Íslandsmeistara Vals í körfubolta kvenna, er hættur með Hlíðarendaliðið og ætlar að taka sér frí frá þjálfun.
Valsmenn skýra frá þessu á samfélagsmiðlum sínum í kvöld og segja að hann ætli að taka sé frí í eitt ár hið minnsta.
Ólafur hefur stýrt Valskonum undanfarin þrjú tímabil og liðið hefur orðið tvisvar Íslandsmeistari og einu sinni deildarmeistari undir hans stjórn.
Valsmenn segja í tilkynningunni að ríkur vilji stjórnar og leikmanna hefði verið til þess að hann héldi áfram með liðið en fullur skilningur sé á því að í lífinu séu mikilvægari hlutir en körfubolti. Honum standi ávallt opnar dyr á Hlíðarenda ef hann kjósi að snúa sér að þjálfun á ný.