Denver Nuggets og Philadelphia 76ers unnu bæði gífurlega sterka sigra í undanúrslitaeinvígjum sínum í Vestur- og Austurdeildum NBA-deildarinnar í körfuknattleik í nótt.
Denver er komið í 3:2 í einvígi sínu við Phoenix Suns í Vesturdeildinni eftir öruggan 118:102-sigur í nótt.
Nikola Jokic var með þrefalda tvennu fyrir Denver er hann skoraði 29 stig, tók 13 fráköst og gaf 12 stoðsendingar. Bruce Brown kom öflugur inn af varamannabekknum og skoraði 25 stig.
Stigahæstur hjá Phoenix var Devin Booker með 29 stig og Kevin Durant bætti við 26 stigum, 11 fráköstum og sjö stoðsendingum.
Denver er nú einum sigri frá sæti í úrslitaeinvígi Vesturdeildarinnar.
Philadelphia er sömuleiðis komið í 3:2 í einvígi sínu við Boston Celtics í Austurdeildinni eftir frábæran 115:103-sigur í nótt.
Kamerúninn Joel Embiid var stigahæstur í liði Philadelphia með 33 stig og sjö fráköst og Tyrese Maxey var skammt undan með 30 stig og sjö fráköst.
Stigahæstur í leiknum var Jayson Tatum með 36 stig og tíu fráköst fyrir Boston. Jaylen Brown bætti við 24 stigum.
Philadelphia er því nokkuð óvænt einum sigri frá sæti í úrslitaeinvígi Austurdeildarinnar.