Körfuknattleiksmaðurinn Oddur Rúnar Kristjánsson hefur yfirgefið Njarðvík. Oddur lék 23 leiki með Njarðvík á leiktíðinni, en hann lék einnig með liðinu á árunum 2015 til 2018.
„Það er alltaf geggjað að vera í Njarðvík en ákvörðunin mín um að fara er mest vegna tíma í akstri og svo er það full vinna, nám og fjölskyldan,“ var haft eftir Oddi í frétt á heimasíðu félagsins.
Oddur hefur einnig leikið með Val, Grindavík, ÍR, KR og Stjörnunni hér á landi. Hann gekk í raðir Njarðvíkur í lok ágúst á síðasta ári, eftir að hafa afplánað fjögurra ára bann fyrir að falla á lyfjaprófi.