Njarðvíkingurinn öflugur í fyrsta undanúrslitaleik

Kristinn Pálsson í leik með íslenska landsliðinu.
Kristinn Pálsson í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Njarðvíkingurinn Kristinn Pálsson, landsliðsmaður í körfuknattleik , lék vel fyrir Aris Leeuwarden þegar liðið mátti sætta sig við naumt tap, 93:99, fyrir Leiden í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Hollands hluta BNXT-deildarinnar, sameiginlegrar úrvalsdeildar Hollands og Belgíu, í gærkvöldi.

Kristinn skoraði 16 stig, tók sex fráköst og gaf þrjár stoðsendingar á rúmum 40 mínútum hjá Leeuwarden.

Staðan var jöfn, 85:85, að fjórum leikhlutum loknum og þurfti því framlengingu til þess að knýja fram sigurvegara, þar sem Leiden reyndist sterkari aðilinn.

Leiden leiðir nú 1:0 í einvíginu en þrjá sigra þarf til þess að tryggja sér sæti í úrslitaeinvígi hollenska hluta deildarinnar.

Sigurvegarinn í því mætir svo sigurvegara úrslitaeinvígis belgíska hluta deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert