Ísak Máni Wíum verður áfram þjálfari karlaliðs ÍR í körfuknattleik á næsta tímabili.
Ísak Máni er aðeins 23 ára gamall og tók við stjórnartaumunum hjá uppeldisfélaginu fyrir nýafstaðið tímabil, þar sem ÍR mátti sætta sig við fall úr úrvalsdeildinni niður í 1. deild.
Hann fær nú tækifæri til þess að freista þess að koma Breiðhyltingum aftur upp í deild þeirra bestu.