Denver Nuggets hafði betur gegn Phoenix Suns, 125:100, í sjötta leik liðanna í undanúrslitum Vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfuknattleik í nótt og vann þar með einvígið 4:2. Boston Celtics jafnaði þá einvígi sitt við Philadelphia 76ers í undanúrslitum Austurdeildarinnar í 3:3 með 95:86-sigri.
Serbinn magnaði, Nikola Jokic, var samur við sig og náði þrefaldri tvennu fyrir Denver er hann skoraði 32 stig, tók tíu fráköst og gaf 12 stoðsendingar. Jamal Murray bætti við 26 stigum.
Hjá Phoenix var Cameron Payne stigahæstur með 31 stig. Kevin Durant skoraði 23 stig.
Denver er með sigrinum búið að tryggja sér sæti í úrslitum Vesturdeildar, þar sem liðið mun mæta annaðhvort ríkjandi NBA-meisturum Golden State Warriors eða LA Lakers.
Hjá Boston var Marcus Smart stigahæstur með 22 stig og sjö fráköst. Jayson Tatum skoraði þá 19 stig, tók níu fráköst og gaf sex stoðsendingar.
Joel Embiid og Tyrese Maxey voru stigahæstir í leiknum með 26 stig hvor. Embiid tók einnig tíu fráköst.
Með sigri Boston er ljóst að liðin þurfa að mætast í oddaleik til þess að freista þess að tryggja sér sæti í úrslitaeinvígi Austurdeildarinnar, þar sem sigurvegarinn mætir annaðhvort Miami Heat eða New York Knicks.