Pavel Ermolinskij, þjálfari Tindastóls, var hæstánægður með sigur sinna manna á Val þegar hann mætti í viðtal til fréttaritara mbl.is í kvöld. Tindastóll vann frábæran 90:79 útisigur á Val í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins í körfubolta og leiðir nú einvígið 2:1.
„Þetta er sigur í úrslitaeinvígi, leikur þrjú og staðan er 1:1. Leikirnir verða ekki mikið stærri en þetta og ég er gríðarlega ánægður með mína menn.“
Tindastóll átti ekki góðan leik í fyrri hálfleik í kvöld og t.a.m. var skotnýting liðsins fyrir utan þriggja stiga línuna 7% þegar flautað var til hálfleiks. Pavel hvatti sína menn í hálfleik til að halda áfram að skjóta.
„Við vorum í raun og veru bara heppnir að vera sjö stigum undir í hálfleik, svona miðað við hvernig fyrri hálfleikurinn spilaðist. Við lögðum áherslu á að taka stjórnina í síðari hálfleik og stýra leiknum þangað sem við vildum fá hann. Við vildum sprengja leikinn upp og ekki leyfa þeim að drepa leikinn, það er það sem Valur gerir langbest. Við keyrðum upp pressuna varnarlega og keyrðum líka upp hraðann sóknarlega og tókum stjórn á þessum leik.“
Stuðningsmenn Tindastóls voru enn og aftur frábærir í kvöld og segir Pavel þá vera ótrúlega mikilvæga fyrir liðið sem sækir oft kraft upp í stúku þegar þreytan fer að láta vita af sér.
„Við erum búnir að segja allt um þessa ótrúlegu stuðningsmenn en ég vil að það komi fram hvað þeir skipta okkur miklu máli. Út af því að við spilum eins og við spilum, hratt og ákaft, þá byggjum við okkar leik á mikilli stemningu og þá tengjum við mikið við þennan stuðning og ærslagang í stuðningsmönnum okkar. Þegar við komumst af stað í leikjum og náum að tengja við stúkuna þá er Tindastóll mun ógnvægilegra lið en ella.“
Tindastóll getur tryggt sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í sögu félagsins á mánudaginn með sigri í leik fjögur. Pavel sagði að hann hafi ekki verið að hugsa það þegar hann lagði skóna á hilluna síðasta vor að hann myndi mögulega skrifa nafn sitt í sögubækurnar sem þjálfari fyrsta meistaraliðs Tindastóls.
„Mér datt það ekki í hug og ég held að mitt nafn verði mjög aftarlega í þeirri sögubók ef hún verður einhverntíman skrifuð. Ég er mjög þakklátur fyrir að fá að vera hluti af þessu og það er sjálfselsk pæling hjá mér að ég vil vera á staðnum þegar Tindastóll verður Íslandsmeistari.“