Leiden hafði betur gegn Aris Leeuwarden í öðrum leik liðanna í undanúrslitum hollenska körfuboltans í dag, 72:64. Staðan í einvíginu er 2:0 fyrir Leiden og nægir liðinu einn sigur í viðbót til að fara í úrslit.
Njarðvíkingurinn Kristinn Pálsson skoraði sjö stig fyrir Leeuwarden, tók átta fráköst og gaf fjórar stoðsendingar á 31 mínútu.
Kristinn hitti illa í dag og skoraði aðeins úr einu af átta þriggja stiga skotum sínum og einu af níu tveggja stiga skotum.