Alicante mátti þola naumt tap á heimavelli gegn Gipuzkoa í B-deild spænska körfuboltans í kvöld, 79:81.
Ægir Þór Steinarsson, sem lék áður með Gipuzkoa, átti flottan leik fyrir Alicante, þrátt fyrir tapið. Skoraði landsliðsmaðurinn 12 stig, gaf sex stoðsendingar og tók tvö fráköst á 30 mínútum.
Þrátt fyrir tapið er Alicante á leiðinni í umspil um sæti í efstu deild, en liðið er í níunda sæti deildarinnar með 18 sigra og 15 töp.