Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, var skiljanlega svekktur þegar fréttaritari mbl.is náði af honum tali eftir tap gegn Tindastóli. Lokatölur urðu 90:79 fyrir Tindastól og eru Valsarar lentir 2:1 undir í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta.
„Þeir voru grimmari en við í seinni hálfleiknum og nýttu sín augnablik betur. Við vorum í vandræðum sóknarlega lengi en ég er hvað fúlastur með að þegar við erum að ná að skora á þá, þá erum við á sama tíma að leka full auðveldum körfum fyrir minn smekk. Síðan kemur áhlaup hjá þeim þar sem þeir gera vel og negla niður þristum, við förum að falla full djúpt niður að körfunni. Staðan er svo 75:70 þarna í einhverjar sex mínútur og maður var að bíða eftir að annaðhvort liðið myndi grípa gæsina en við náðum ekki að grípa augnablikið þegar það bauðst okkur.“
Eins og Finnur segir þá var staðan lengi vel í fjórða leikhluta föst í 75:70, Tindastóli í vil. Finnur segir að það hafi verið dauðafæri þá til að ná stjórninni á leiknum og vinna hann.
„Pablo Bertone fékk tvö fín færi við hringinn, Kári fékk tvö opin þriggja stiga skot og Callum Lawson eitt en boltinn vildi bara ekki fara ofan í. Ég var að spá hvort ég ætti að grípa inn í með því að taka leikhlé en ég var svosem ekkert ósáttur með færin sem við vorum að spila okkur í. En þetta var vel gert hjá Stólunum, þeir voru grimmari og áttu þennan sigur skilið.“
Valur má ekki tapa leik það sem eftir er af einvíginu og segir Finnur að sýnir menn verði bara að mæta á Sauðárkrók á mánudag og vinna þann leik, það sé ekkert annað í boði.
„Þetta snýst um að vinna þrjá leiki og við erum 2:1 undir, við getum bara stýrt því sem gerist í næsta leik og verðum að mæta klárir á Krókinn á mánudaginn og gera okkar besta þar. Við getum ekkert pælt í einhverjum oddaleik heldur þurfum við að byrja á að vinna á mánudaginn og fókusinn er strax kominn þangað.“
Mikið hefur verið rætt og ritað um stuðningsmannasveit Tindastóls, hversu frábær hún sé. Finnur hrósaði stuðningsmannasveit Vals eftir leikinn og sagði þá ekkert gefa eftir í baráttunni um stúkuna.
„Stuðningsmennirnir okkar voru virkilega flottir. Það var góð orka í húsinu í dag og það eru forréttindi að fá að spila hér fyrir fullu húsi. Þetta verður svo dálítið flókið fyrir okkar stuðningsfólk því kvennaliðið okkar í handbolta er að spila á mánudaginn í Vestmannaeyjum þannig það er mikið álag á stuðningsfólki Vals á þessum árstíma, sem er mjög gaman. En stuðningsfólk Stólanna er stórkostlegt líka og styðja vel við bakið á sínu liði, enda orðnir vel hungraðir.“