Valur og Tindastóll mættust á Hlíðarenda í kvöld í þriðja leik úrslitaeinvígis Íslandsmótsins í körfubolta. Tindastóll vann gríðarlega sterkan 90:79 útisigur og leiðir einvígið 2:1.
Fjórði leikur liðanna fer fram næsta mánudagskvöld á Sauðárkróki og getur Tindastóll tryggt sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í sögunni.
Leikurinn fór fjörlega af stað og það var ljóst frá fyrstu sókn að það yrði hart barist um hvern einasta bolta. Heimamenn höfðu frumkvæðið til að byrja með og kom Pablo Bertone Völsurum þremur stigum yfir, 9:6, þegar hann setti niður fyrsta þrist kvöldsins.
Gestirnir spyrntu vel frá sér og tóku fimm stiga forystu, 16:21, þegar Antonio Keyshawn Woods setti niður tvö góð stig.
Þá setti Ozren Pavlovic niður fimm stig í röð fyrir Valsara og sá til þess að staðan eftir fyrsta leikhluta var jöfn, 21:21.
Annar leikhluti var eign Kára Jónssonar, leikmanns Vals. Hann spilaði frábærlega og setti niður hvern þristinn á fætur öðrum. Hann kom heimamönnum í sex stiga forystu, 36:30, þegar hann setti niður einn þristinn.
Antonio Keyshawn Woods minnkaði muninn í 36:34 eftir að hafa stolið boltanum af Pablo Bertone og skorað góð tvö stig undir körfunni.
Það var svo Kári sem að nelgdi niður þrist einhverja þrjá metra fyrir utan þriggja stiga línuna og kveikti svo sannarlega í stuðningsmönnum Vals. Heimamenn yfir, 43:36.
Valsarar fóru með sjö stiga forystu inn í hálfleik, 49:42. Heimamenn voru með 58% nýtingu á þriggja stiga skotum sínum í hálfleiknum, 7/12. Gestirnir voru hinsvegar afleitir fyrir utan þriggja stiga línuna í fyrri hálfleik og hittu úr 1/14 eða 7% skotum sinna.
Í þriðja leikhluta voru Tindastólsmenn betri aðilinn. Gestirnir fóru að setja niður þrista og Valsarar áttu í erfiðleikum með sóknarleik Tindastóls.
Adomas Drungilas minnkaði muninn í fimm stig, 57:52, þegar hann setti niður góðan þrist úr horninu. Það var svo Taiwo Badmus sem að jafnaði leikinn 57:57 þegar leikhlutinn var hálfnaður.
Ragnar Ágústsson setti niður þrist úr horninu og kom gestunum í fjögurra stiga forystu, 66:70 og var það staðan þegar þriðja leikhluta lauk.
Það var lítið sem ekkert sem gekk upp sókanarlega hjá liðunum framan af fjórða leikhluta. Eftir fimm og hálfa mínútu spilaða í leikhlutanum var staðan í honum 5:4 Tindastól í vil.
Taiwo Badmus skoraði fjögur stig í röð fyrir gestina og kom þeim í níu stiga forystu þegar rúmar tvær og hálf mínúta var til leiksloka, 72:81.
Valsarar reyndu hvað þeir gátu til að jafna en bilið var of mikið og endaði leikurinn með 90:79 útisigri Tindastóls sem er nú í dauðafæri á að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta skipti í sögu félagsins.
Hjá Val var Kári Jónsson stigahæstur með 19 stig, Pablo Bertone skoraði 16. Hjá gestunum var Antonio Keyshawn Woods stigahæstur með 21 stig og Taiwo Badmuns skoraði 20.