Enn á ný hefur körfuknattleiksliði Vestra á Ísafirði í 2. deild 11. flokks drengja verið meinað að spila vegna ólöglegs leikmanns. Í þetta skiptið missa þeir af úrslitaleik deildarinnar.
Körfuknattleiksfélagið Vestri á Ísafirði freistaði þess fyrir yfirstandandi tímabil að finna samastað fyrir leikmann sinn sem fæddur var 2005 og var einn eftir í sínum flokki.
Brá Vestri á það ráð að leyfa leikmanninum að keppa með árganginum fyrir neðan sig, drengjum fæddum árið 2006 ef að öll lið 2. deildar væru því samþykk.
Formaður barna- og unglingaráðs körfuknattsdeildar Vestra leitaðist eftir því að heiðursmannasamkomulag yrði gert á milli liðanna vegna þessa og fékk hann skriflegt samþykki frá þeim öllum áður en að tímabilið hófst.
Lið Vestra endaði í 4. sæti annarrar deildar og komst þar með í úrslitakeppnina. Barst þá ábending til KKÍ frá Tindastól, sem varð í 5. sæti deildarinnar og komst ekki í úrslitakeppnina, um að ólöglegur leikmaður hafi spilað með Vestra.
Dæmdi þá mótastjórn KKÍ Vestra ósigur í tveimur leikjum og færðist liðið með því niður um eitt sæti og missti af sæti í úrslitakeppninni.
Í ljós kom að mikill minnihluti körfuknattleiksdeildar Tindastóls var sammála kvörtuninni. Baðst Tindastóll velvirðingar á mistökunum og dró lið sitt úr keppni og fékk þá Vestri aftur sæti í úrslitakeppninni.
Yngri flokkar Vestra sendu í kvöld frá sér yfirlýsingu á Facebook þar sem málið er rakið og nýjustu vendingar í því.
Þar stendur að í kjölfar þess að Tindastóll hafi dregið sig úr keppninni hafi mótastjórn KKÍ boðið liði Vestra sæti í undanúrslitum deildarinnar.
„Mótastjórn var upplýst um að Vestri myndi spila með ólöglegan leikmann í úrslitakeppninni ef andstæðingarnir myndu samþykkja það sem þeir og gerðu með glöðu geði. Starfsmaður mótastjórnar sagði að KKÍ myndi ekki aðhafast nema til kæmi kæra eða ábending vegna þessa,“ segir í yfirlýsingu Vestra.
Strákarnir kepptu undanúrslitaleik við c-lið Stjörnunnar 30. apríl og unnu leikinn 67-52 og voru þar með komnir í úrslit sem áttu að verða sunnudaginn 14. maí. Sami háttur var þá hafður á fyrir úrslitaleikinn eins og með undanúrslitaleikinn.
„Andstæðingar voru beðnir um leyfi til að umræddur leikmaður fengi að spila úrslitaleikinn og var það samþykkt fúslega. Aftur var haft samband við mótastjórn KKÍ og spurt hvort þeir myndu gera athugasemdir við að umræddur leikmaður spilaði leikinn. En nú bar við annan tón og KKÍ sagði það ekki leyfilegt skv. reglugerð um körfuknattleiksmót.
Við höfum ítrekað óskað eftir svörum hver sé munurinn á undanúrslitaleiknum og úrslitaleiknum en ekki fengið svör. Í dag, 48 klukkustundum fyrir fyrirhugaðan úrslitaleik, fengum við síðan upplýsingar um að Vestra hefði verið dæmt 20-0 tap í undanúrslitaleiknum og væri því ekki í úrslitum,“ segir í yfirlýsingu Vestra.
Lýsir félagið yfir undrun sinni um að reglugerð KKÍ um körfuknattleiksmót gildi ekki um alla leiki. Það hafi ekkert verið því til fyrirstöðu að Vestri myndi mæta í úrslitaleikinn með sama lið og í alla aðra leiki vetrarins, nema KKÍ.
„Við í kkd. Vestra erum sár og svekkt vegna þessara málaloka. Sárast í þessu öllu er að vegna ósamræmis í vinnubrögðum KKÍ fá strákarnir okkar sem voru búnir að vinna sér inn sæti í úrslitum ekki að spila úrslitaleikinn á sunnudaginn,“ segir í enda yfirlýsingarinnar sem er undirrituð af Þóri Guðmundssyni formanni barna- og unglingaráðs kkd. Vestra og Neil Shiran Þórissyni formanns kkd. Vestra.