Körfuboltakonan Eva Margrét Kristjánsdóttir átti góðan leik þegar lið hennar Keilor Thunder vann nauman útisigur, 97:94 á Sandringham Sabres í áströlsku B-deildinni í körfubolta í morgun.
Eva spilaði rúmar 28 mínútur í leiknum, skoraði 10 stig, tók 6 fráköst og gaf 1 stoðsendingu.
Keilor Thunder situr nú í 14. sæti deildarinnar af 19 liðum. Liðið er búið að spila átta leiki, vinna þrjá og tapa fimm. Sigurinn í morgun var sætur þar sem lið Sandringham er talsvert ofar í töflunni en Keilor.
Eva er á láni hjá Keilor Thunder frá Haukum en Eva mun snúa aftur til Hauka þegar tímabilið klárast í Ástralíu um miðjan ágúst og spila með liðinu í úrvalsdeild kvenna á næsta tímabili.