Kristinn Pálsson og félagar í Aris Leeuwarden féllu í dag út í undanúrslitunum um hollenska meistaratitilinn í körfuknattleik eftir ósigur gegn Leiden í framlengdum leik á útivelli, 98:94.
Leiden vann þar með einvígið 3:0 og mætir Donar Groningen eða Den Bosch í úrslitunum.
Kristinn lék í 28 mínútur með Aris í dag og skoraði 11 stig, tók fjögur fráköst og átti tvær stoðsendingar.
Tímabilinu er þar með lokið hjá honum en Aris leikur í BNXT-deildinni, sameiginlegri úrvalsdeild Hollands og Belgíu. Eftir að liðið lauk keppni þar tók við útsláttarkeppni um meistaratitilinn í Hollandi.