Íslandsmeistarabikarinn er mættur á Sauðárkrók en í kvöld fer fram fjórði leikur Tindastóls og Vals í úrslitaeinvígi Íslandsmóts karla í körfuknattleik í Síkinu á Sauðárkróki.
Tindastóll leiðir 2:1 í einvíginu og getur með sigri í kvöld tryggt sér sæti Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Valsmenn eru ríkjandi Íslandsmeistarar en liðið hafði betur gegn Tindastóli í úrslitaeinvígi síðasta árs þar sem úrslitin réðust í oddaleik.
Leikur Tindastóls og Vals hefst klukkan 19:15 og verður í beinni textalýsingu á mbl.is.