Elvar og félagar með sópinn á lofti

Elvar Már Friðriksson í leik með íslenska landsliðinu.
Elvar Már Friðriksson í leik með íslenska landsliðinu. Ljósmynd/FIBA

Elvar Már Friðriksson, landsliðsmaður í körfuknattleik, og liðsfélagar hans í Rytas frá Vilníus, tryggðu sér í gær sæti í undanúrslitum litháísku deildarinnar með því að hafa betur gegn Neptunas, 107:99, í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitunum.

Aðeins þurfti tvo sigra til þess að tryggja sætið í undanúrslitum og vann Rytas, sem er ríkjandi meistari í Litháen, einvígið samanlagt 2:0 og sópaði Neptunas þar með úr keppni.

Elvar Már skoraði sjö stig, tók tvö fráköst, gaf sjö stoðsendingar og stal þremur boltum á tæpum 23 mínútum í gær.

Í undanúrslitum mætir Rytas liði Jonava, sem vann BC Wolves sömuleiðis 2:0 í átta liða úrslitum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert