Fjöldi fólks er nú mættur fyrir utan íþróttahúsið á Sauðárkróki, betur þekkt sem Síkið, en þar fer fram fjórði úrslitaleikur Tindastóls og Vals á Íslandsmóti karla í körfuknattleik í kvöld en flautað verður til leiks klukkan 19:15.
Tindastóll leiðir 2:1 í einvíginu og getur með sigri í kvöld tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn eftirsótta í fyrsta sinn í sögu félagsins. Það er löngu uppselt á leikinn en búast má við í kringum 1.800 manns á leikinn.
Byrjað verður að hleypa inn í húsið einum og hálfum tíma fyrir leik, klukkan 17:45, en fyrstu stuðningsmennirnir voru mættir fyrir utan íþróttahúsið upp úr 16 í dag.