„Þurfum að ræna honum“

Nikola Jokic reynist flestum andstæðingum sínum erfiður ljár í þúfu.
Nikola Jokic reynist flestum andstæðingum sínum erfiður ljár í þúfu. AFP/Matthew Stockman

Darvin Ham, þjálfari LA Lakers í NBA-deildinni í körfuknattleik, segir einungis eitt ráð muni duga til þess að stöðva Serbann magnaða í liði Denver Nuggets, Nikola Jokic, í úrslitaeinvígi liðanna í Vesturdeildinni.

Á blaðamannafundi í dag var Ham spurður hvernig Lakers hygðist stöðva Jókerinn illviðráðanlega í rimmunni.

„Við þurfum að grípa hann á leiðinni út af heimili sínu og ræna honum,“ grínaðist þjálfarinn þá.

Fyrsti leikur liðanna fer fram aðfaranótt miðvikudags, skömmu eftir miðnætti, í Denver.

Darvin Ham, þjálfari LA Lakers.
Darvin Ham, þjálfari LA Lakers. AFP/Thearon W. Henderson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert