„Dómararnir eru komnir niður af Holtavörðuheiði og eru í toppmálum núna, það gengur bara vel. Valsararnir, sem sagt liðið, fóru af stað í gær þannig að þeir eru komnir norður,“ sagði Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, í samtali við mbl.is.
Í kvöld fer fram fjórði úrslitaleikur Íslandsmóts karla í körfuknattleik þegar Tindastóll fær ríkjandi Íslandsmeistara Vals í heimsókn á Sauðárkrók. Staðan er 2:1 fyrir Stólunum og geta þeir með sigri í kvöld tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn.
Í hádeginu var Holtavörðuheiði lokað vegna slæmra akstursskilyrða þar. Vísir greindi þá frá því að dómarar leiksins, þeir Sigmundur Már Herbertsson, Kristinn Óskarsson og Davíð Tómas Tómasson, væru fastir á heiðinni.
Heiðin var svo opnuð að nýju fyrir um klukkutíma síðan en þar er þó enn hálka og þungfært.
„Það gengur allt vel núna, ég held að það mesta sé búið. Það er mikilvægast að fólk fari varlega, keyri varlega og veri skynsamt í því sem það er að gera. Það er það sem skiptir mestu máli í þessum aðstæðum.
Að vera eins og flestir eru búnir að vera, tímanlega í því og vera búin undir það að þetta taki smá lengri tíma heldur en í sumarfærðinni,“ bætti Hannes við.
Sjálfur var framkvæmdastjórinn einmitt staddur á Holtavörðuheiði á leiðinni á leikinn þegar mbl.is sló á þráðinn til hans.
Spurður hvort hann vissi hver staðan væri á stuðningsfólki liðanna sem hyggjast halda á Sauðárkrók sunnan frá sagði Hannes:
„Það er allavega töluverð umferð þannig að ég gæti trúað því að þeir séu einhverjir á leiðinni, bæði uppi á Holtavörðuheiði og fyrir aftan okkur. Ég hugsa að þeir séu bara lagðir af stað líka.“
Leikurinn hefst klukkan 19.15 í kvöld.