Forráðamenn bandaríska körfuknattleiksfélagsins Philadelphia 76ers hafa vikið þjálfaranum Doc Rivers frá störfum, eftir að honum mistókst að koma liðinu í úrslit Austurdeildarinnar í NBA.
Philadelphia mátti þola tap fyrir Boston í undanúrslitum, en Boston vann oddaleik liðanna 112:88, eftir að Phildelphia hafði komið sér í 3:2 í einvíginu.
Undir stjórn Rivers vann Philadelphia 54 deildarleiki á tímabilinu, sem er besti árangur liðsins frá 2000/01 leiktíðinni.
Milwaukee Bucks, Phoenix Suns, Toronto Raptors og Detroit Pistons eru öll í þjálfaraleit sem stendur, ásamt Philadelphia, og því er ljóst að miklar hrókeringar verða í þjálfaramálum NBA-deildarinnar.