Hannes Sigurbjörn Jónsson, framkvæmdastjóri Körfuknattleikssambands Íslands, var í dag útnefndur varaforseti Körfuknattleikssambands Evrópu, FIBA Europe, á stjórnarfundi í Slóveníu.
Stjórn sambandsins, sem kom nú saman í fyrsta sinn eftir kosningu í vor, samþykkti einróma tillögu forseta sambandsins, Jorge Garbajosa, um þrjá varaforseta, en auk Hannesar eru það Matej Erjavec frá Slóveníu og Carmen Tocala frá Rúmeníu.
Með þessu er Hannes jafnframt kominn í níu manna framkvæmdaráð FIBA Europe.
Um leið var tilkynnt um skipan í nefndir FIBA Europe. Þar var Guðbjörg Norðfjörð, formaður KKÍ, skipuð í unglinganefnd sambandsins.
Í tilkynningu frá KKÍ sem var að berast segir Hannes:
„Ég er mjög þakklátur fyrir það mikla traust sem Jorge ber til mín, KKÍ og Íslands með þessari útnefningu. Ég þurfti aðeins að hugsa málið þegar Jorge nefndi þetta við mig, ég vildi ræða þetta við fjölskylduna og samstarfsfélaga mína á skrifstofu og í stjórn sambandsins.
Þetta er stórt tækifæri til að koma enn meira á framfæri þeim skoðunum sem við höfum á alþjóðlegum körfubolta og við hjá KKÍ höfum unnið eftir ásamt Norðurlöndunum. Ég mun m.a. beita mér fyrir meira jafnrétti á milli kynjanna, að keppnisfyrirkomulag kvennalandsliðanna sé eins og hjá körlunum, meira fjármagn fari frá FIBA Europe og FIBA til aðildarlandanna.
Það verður að finna lausn á þeim samskipta- og skipulagsvanda sem er á milli EuroLeague og FIBA, hér verða menn að leggja sínar stöður til hliðar og hugsa númer eitt um körfuboltann í Evrópu.
Við þurfum að vinna í því að koma á uppeldisbótum þegar efnilegir leikmenn frá minni félögum fara á milli. Mikið væri gott ef framfaraskref í þessum málum sem ég nefndi yrðu mikil á næstu fjórum árum í evrópskum og alþjóðlegum körfubolta“.
Þar er jafnframt haft eftir Guðbjörgu Norðfjörð, formanni KKÍ:
„Fyrir okkur hjá KKÍ er þetta mikil viðurkenning á því alþjóðlega starfi sem við höfum unnið síðustu ár. Við viljum vera þarna, hafa áhrif og láta rödd okkar heyrast.
Við höfum unnið markvisst með norðurlandaþjóðunum undanfarin ár í því að koma á framfæri hlutum sem kannski stóru þjóðirnar gleyma stundum. Við trúum því að nýr forseti og stjórn hafi þá yfirsýn sem þarf til að allir fái rödd og tekið sé tillit til sérstöðu landanna.
Hannes mun vinna ötullega að því að koma okkar sýn á framfæri, við er afar stolt og ánægð að Hannes sé nú varaforseti FIBA Europe“.