Tekur fram skóna og fer í Stjörnuna

Unnur Tara Jónsdóttir
Unnur Tara Jónsdóttir Ljósmynd/Stjarnan körfubolti

Körfuboltakonan Unnur Tara Jónsdóttir tekur fram skóna á ný og mun spila með Stjörnunni í efstu deild á þessu tímabili. 

Unnur er 34 ára gömul og spilaði síðast árið 2021 með KR. Hún er bakvörður og hefur einnig leikið með Haukum á ferlinum og á að baki fimm A-landsleiki. 

„Mun hennar reynsla og hæfileikar klárlega nýtast liðinu okkar á komandi tímabili.
Við fögnum komu hennar og munum taka vel á móti henni í vetur,“ stóð í tilkynningu Stjörnunnar á samfélagsmiðlum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert