Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að mbl.is greindi frá því að Pavel Ermolinskij, þjálfari karlaliðs félagsins, væri kominn í veikindaleyfi.
Pavel, sem er 37 ára gamall, tók við þjálfun Tindastóls í janúar á síðasta ári og gerði liðið að Íslandsmeisturum í fyrsta sinn í sögu félagsins síðasta vor.
„Í ljósi veikindaforfalla Pavels Ermolinskij hefur verið ákveðið að Svavar Atli Birgisson taki tímabundið við sem þjálfari meistaraflokks Tindastóls í körfuknattleik karla,“ segir í tilkynningu Tindastóls.
„Honum til aðstoðar verður Helgi Freyr Margeirsson. Svavar Atli hefur í langan tíma verið aðstoðarþjálfari meistaraflokksins, nú síðast með Pavel, og Helgi Freyr er þjálfari meistaraflokks kvenna en bætir þessu nýja hlutverki við sig fram á vorið.
Fjölmiðlafólk er beðið um að sýna Pavel tillitssemi í umfjöllun sinni um þessar breytingar og virða friðhelgi hans í bataferlinu. Körfuknattleiksdeild Tindastóls mun ekki tjá sig frekar um málið á næstunni,“ segir meðal annars í tilkynningunni sem Dagur Baldvinsson, formaður körfuknattleiksdeildarinnar, skrifar undir.