Martin á fæðingadeildinni

Martin Hermannsson er á fæðingadeildinni í kvöld.
Martin Hermannsson er á fæðingadeildinni í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Martin Hermannsson er ekki með Alba Berlín sem leikur við Mónakó í Evrópudeildinni í körfubolta í kvöld þar sem hann og eiginkona hans Anna María Bjarnadóttir eiga von á sínu öðru barni.

Þýska félagið greindi frá á X-síðu sinni í kvöld, en landsliðsmaðurinn gekk aftur í raðir Alba frá Valencia á dögunum. Er hann að komast á fullt aftur eftir erfiða tíma vegna meiðsla.

Þegar fréttin er skrifuð er Mónakó með 69:62-forskot í Berlín, en Alba-liðinu hefur gengið illa í Evrópudeildinni í vetur og er í botnsætinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert