Njarðvík og Þór Þ. áttust við í þriðja leik sínum í 8 liða úrslitum efstu deildar karla í körfubolta í kvöld og lauk leiknum með sigri Þórs, 110:107, og eru Þorlákshafnarbúar 2:1 yfir í einvíginu.
Þór er því einum sigri frá því að komast í undanúrslit gegn annað hvort Val eða Hetti frá Egilsstöðum.
Þór sterkari í fyrsta leikhluta
Leikurinn í kvöld var gríðarlega hraður og spennandi. Stemmningin í Ljónagryfjunni í Njarðvík var algjörlega til fyrirmyndar og var vel mætt hjá báðum liðum.
Það var Darvin Davis sem setti niður fyrstu körfuna í kvöld fyrir gestina úr Þór en Milka jafnaði strax í næstu sókn. Liðin skiptust síðan á að jafna og komast yfir en Þórsarar voru örlítið sterkari í fyrsta leikhluta og leiddu með 9 stigum 31:22 eftir fyrsta leikhluta.
Njarðvík skoraði 38 stig í öðrum leikhluta
Annar leikhluti var stórkostlega skemmtun þar sem Njarðvíkingar skoruðu 38 stig. Bæði lið léku fast og börðust af mikilli hörku. Njarðvík tókst að jafna í stöðunni 36:36 og svo aftur í stöðunni 46:46. Veigar Alexandersson kom Njarðvík síðan yfir 48:46 og þá tók við frábær kafli hjá heimamönnum sem endaði með flautuþrist frá Maciej Baginski.
Njarðvík leiddi með 9 stigum í hálfleik, 62:53.
Stigahæstur í liði Njarðvíkur í fyrri hálfleik var Chaz Williams með 15 stig en í liði Þórs var Tómas Valur Þrastarson með 16 stig.
Njarðvík setti niður fyrstu körfu þriðja leikhluta og staðan 64:53. Þór setti síðan niður næstu körfu og þannig gekk leikhlutinn fyrir sig en gestirnir minnkuðu þó muninn hægt og þétt allt þar til þeir jöfnuðu í stöðunni 69:69, 71:71 og svo aftur í 77:77.
Þá urðu ákveðin kaflaskipti því gestirnir frá Þorlákshöfn komust yfir 80:77. Þegar þriðja leikhluta lauk voru gestirnir yfir með 4 stigum 83:79 fyrir Þór.
4 leikhluti kallaði á sprengitöflur
Gestirnir virtust ætla að vera sterkari í 4 leikhluta og landa sigri en það var ekki svo. Þórsarar náðu mest 6 stiga forskoti í stöðunni 87:81 en þá fóru heimamenn að minnka muninn og náðu að lokum að jafna í stöðunni 89:89, 91:91 og 98:98.
Þá skoruðu gestirnir 2 stiga körfu og náðu forystu 100:98. Dominykas Milka jafnaði leikinn í stöðunni 100:100 á lokasekúndunni og því þurfti að framlengja.
Milka skoraði fyrstu tvö stig framlengingarinnar en gestirnir jöfnuðu um hæl. Í kjölfarið fylgdu tvær körfur frá Þór og munurinn orðinn 4 stig í stöðunni 106:102 fyrir Þór.
Njarðvík náði að minnka muninn niður í 106:105 og aftur í 108:107. Þá komu tvö stig í viðbót frá frá gestunum og þeir unnu að lokum þriggja stiga sigur 110:107 og eru í kjörstöðu fyrir fjórða leikinn sem fer fram í Þorlákshöfn.
Stigahæstur í liði Njarðvíkur var Dominykas Milka með 29 stig en í liði Þórs var Darwin Davis með 30 stig.