Dallas Mavericks er komið í úrslitaeinvígi Vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfuknattleik eftir 117:116 sigur á Oklahoma City Thunder á heimavelli í nótt.
Þetta var sjötti leikur liðanna og Dallas vann einvígið 4:2. Dallas mætir annaðhvort Denver Nuggets eða Minnesota Timberwolves í úrslitaeinvíginu en liðin mætast á morgun í oddaleik.
Dallas var 17 stigum undir í hálfleik og níu stigum undir í byrjun fjórða leikhluta en komu sterkir til baka.
Oklahoma var einu stigi yfir, 116:115 þegar Dallas fór í sókn. Þá var brotið á P.J. Washington Jr. í þriggja stiga skoti, hann steig á vítapunktinn og setti tvö af þremur vítaskotum en klúðraði viljandi þriðja. Oklahoma menn náðu frákastinu og Jalen Williams reyndi langskot en hitti ekki.
Vítaskotin og svipmyndir úr leiknum má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan.
The @dallasmavs erased a 17-point second half deficit to take Game 6 and advance to their 2nd Western Conference Finals in the last 3 years!
— NBA (@NBA) May 19, 2024
Dallas will face the winner of Minnesota/Denver starting Wednesday, May 22 🍿#NBAPlayoffs presented by Google Pixel pic.twitter.com/27AUAVY9QF
Luka Doncic var frábær fyrir Dallas eins og svo oft áður og setti þrefalda tvennu. Skoraði 29 stig, tók tíu fráköst og gaf tíu stoðsendingar.
Þetta er í þriðja sinn á þremur árum sem Dallas spilar úrslitaeinvígi Vesturdeildar en það hefst næstkomandi miðvikudag.