Jamil ráðinn þjálfari Vals

Margrét Ósk Einarsdóttir og Jamil Abiad verða með Valsliðið næsta …
Margrét Ósk Einarsdóttir og Jamil Abiad verða með Valsliðið næsta vetur. Ljósmynd/Valur

Jamil Abiad hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Vals í körfuknattleik fyrir næsta keppnistímabil.

Jamil er aðstoðarþjálfari karlaliðs Vals og er að ljúka sínu öðru tímabili í þjálfun hjá félaginu en hann hefur sinnt einstaklingsþjálfun leikmanna á öllum aldri hjá Val.

Margrét Ósk Einarsdóttir verður aðstoðarþjálfari með honum en hún hefur þjálfað yngri flokka og yngri landslið á undanförnum árum.

Jamil er 33 ára gamall Kanadamaður sem lék og þjálfaði í heimalandi sínu þar til hann kom til liðs við Val.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert