Kane áfram hjá Grindavík

DeAndre Kane.
DeAndre Kane. mbl.is/Óttar Geirsson

Körfuknattleiksmaðurinn DeAndre Kane hefur skrifað undir nýjan samning við Grindavík. 

Kane skrifaði undir samninginn upp á sviði á lokahófi Grindavíkur í kvöld en svo greinir Vísir frá. 

Kane gekk í raðir Grindavíkur fyrir nýliðið tímabil en hann var lykilmaður í liðinu fór alla leið í oddaleik í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins gegn Val og tapaði naumlega, 80:73. 

Kane hefur spilað í mörgum af sterkari deildum Evrópu. Þá varð hann tvívegis meistari í Ísrael með Maccabi Tel Aviv. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert