Framherjinn framlengir við Breiðablik

Zoran Vrkic.
Zoran Vrkic. Ljósmynd/Körfuknattleiksdeild Breiðabliks

Króatinn Zoran Vrkic hefur framlengt samning sinn við Breiðablik sem féll úr úrvalsdeild karla í körfubolta á síðasta tímabili.

Zoran kom til Breiðabliks á miðju síðasta tímabili en hann hefur einnig spilað með Tindastól og Grindavík hér á landi.

Hann var að meðaltali með 13 stig og 6 fráköst í leik í úrvalsdeildinni

Hann hefur spilað á Íslandi undanfarin ár með góðum árangri. Zoran hefur spilað víða yfir ferilinn sinn og er því með gífurlega mikla reynslu sem mun nýtast ungu liði Breiðabliks,“ stóð í tilkynningu félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert