Sá besti í Álftanes

Kjartan Atli Kjartansson, þjálfari Álftaness og Viktor Steffensen.
Kjartan Atli Kjartansson, þjálfari Álftaness og Viktor Steffensen. Ljósmynd/Álftanes körfubolti

Besti leikmaður í fyrstu deild á síðasta tímabili, Viktor Máni Steffensen, hefur samið við Álftanes sem spilar í fyrstu deild karla í körfubolta.

Viktor kemur til liðsins frá Fjölni þar sem hann er uppalinn en hann er 22 ára bakvörður og var að meðaltali með 18 stig, fjögur fráköst og þrjár stoðsendingar í leik á síðasta tímabili og var valinn besti leikmaður tímabilsins.

„Ég er ekkert smá spenntur fyrir komandi tímabili með Álftanesi. Frábært þjálfarateymi, mikill metnaður og reynslumiklir leikmenn sem ég hlakka til að fá að spila með. Auk þess flott stjórn og frábær stemning fyrir körfunni á Álftanesi. Ég hlakka til þess að fá að skína með þeim,“ sagði Viktor Steffensen í tilkynningu liðsins.

„Viktor er gríðarlega spennandi leikmaður sem við fylgdumst vel með á leiktíðinni sem nú var að ljúka. Hann getur skorað á marga vegu, er hávaxinn og mikill íþróttamaður, les leikinn vel og er með virkilega gott hugarfar. Á nesinu ríkir mikil gleði með að Viktor sé kominn til okkar,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson, þjálfari Álftaness.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert