Almar Orri fór á kostum í sigri Íslands

Almar Orri Atlason skoraði 40 stig
Almar Orri Atlason skoraði 40 stig Ljósmynd/FIBA

Íslenska landsliðið í körfubolta skipað leikmönnum tuttugu ára og yngri lagði Finnland á Norðurlandamótinu sem fram fer í Svíþjóð. Lokatölur 85:79 fyrir Ísland sem er Norðurlandameistari eftir fjóra sigra.

Almar Orri Atlason fór hamförum í leiknum og skoraði 40 stig. Almar Orri leikur fyrir Bradley háskólann og þykir mikið efni. Friðrik Leó Curtis skoraði fjórtán stig og tók sex fráköst og Daníel Ágúst Halldórsson skoraði sjö stig, tók sex fráköst og gaf fimm stoðsendingar.

Ísland lauk keppni í dag en liðið vann alla leikina í mótinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert