Leikstjórnandinn Chris Paul hefur samkvæmt ESPN samþykkt samningstilboð San Antonio Spurs um að leika með félaginu út næsta tímabil í NBA deildinni.
Paul yfirgefur Golden State Warriors eftir eitt ár í San Fransisco en hann er þriðji stoðsendingahæsti leikmaður í sögu NBA deildarinnar og er að hefja sitt tuttugasta tímabil.
San Antonio er í uppbyggingu en franska ungstirnið Victor Wembanyama er miðpunkturinn í framtíðarsýn félagsins. Gregg Popovich, þjálfari San Antonio, var gagnrýndur á tímabilinu sem leið fyrir að spila ekki með hefðbundinn leikstjórnanda en Chris Paul er þekktur fyrir að stýra sóknarleik sinna liða með harðri hendi.