Pálmi í Breiðablik

Pálmi Geir Jónsson í leik með Þór.
Pálmi Geir Jónsson í leik með Þór. mbl.is/Kristinn Magnússon

Pálmi Geir Jónsson hefur samið við Breiðablik um að spila fyrir félagið í 1. deild karla í körfubolta í vetur. Pálmi lék fyrir félagið fyrir tíu árum síðan.

Pálmi er Skagfirðingur en hann hefur komið víða við á ferlinum og leikið fyrir Tindastól, Þór Akureyri, ÍR, Hamar, Val og Stjörnuna auk Breiðabliks.

Pálmi var í liði Álftaness sem endaði í fyrsta sæti 1. deildar árið 2023 og Íslandsmeistari með Val árið 2021.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert