Töpuðu fyrir Dönum

Viktor Jónas Lúðvíksson skoraði 21 stig og tók 14 fráköst.
Viktor Jónas Lúðvíksson skoraði 21 stig og tók 14 fráköst. Ljósmynd/FIBA

Strákarnir í U18 ára landsliði Íslands í körfuknattleik biðu lægri hlut fyrir Dönum, 103:94, á Norðurlandamótinu í Södertälje í Svíþjóð í dag.

Þeir eru því án stiga eftir tvo leiki en mæta Svíum í þriðja leik sínum á morgun.

Viktor Jónas Lúðvíksson var í stóru hlutverki með 21 stig og 14 fráköst, Ásmundur Múli Ármannsson skoraði 21 stig og Kristófer Breki Björgvinsson 14.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert