37 stiga sigur á Noregi í fyrsta leik

Stúlknalið Íslands fór létt með Noreg.
Stúlknalið Íslands fór létt með Noreg. Ljósmynd/KKÍ

U16 ára landslið Íslands í körfubolta kvenna vann stóran sigur á jafnöldrum sínum frá Noregi í fyrsta leik sínum á Norðurlandamótinu í Finnlandi í dag. 

Ísland vann leikinn með yfirburðum, 72:35, og mætir Svíþjóð næst á morgun. 

Íslenska liðið var fimm stigum yfir í hálfleik, 28:23, en í þeim seinni valtaði íslenska liðið yfir það norksa. 

Rebekka Rut Steingrímsdóttir skoraði 13 stig fyrir Ísland og stal níu boltum. Hulda María Agnarsdóttir skoraði þá 13 stig og tók fimm fráköst. 

Tinna Diljá Jónasdóttir skoraði ellefu stig og gaf sjö stoðsendingar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert