Íslenska liðið á í erfiðleikum í Svíþjóð

Viktor Jónas Lúðvíksson skoraði 14 stig.
Viktor Jónas Lúðvíksson skoraði 14 stig. Ljósmynd/FIBA

U18 ára lið Íslands í körfubolta karla tapaði sínum þriðja leik á Norðurlandamótinu fyrir heimamönnum í Svíþjóð, 83:76, í Södertalje þarlendis í dag. 

Ísland hefur því tapað fyrstu þremur leikjum sínum á mótinu en næst mætir liðið Finnlandi á föstudaginn. 

Svíar voru átta stigum yfir í hálfleik, 42:34, og héldu Íslendingum frá sér út seinni hálfleikinn. 

Viktor Jónas Lúðvíksson skoraði 14 stig, tók 12 fráköst og gaf fjórar stoðsendingar fyrir Ísland. Þá skoraði Lars Erik Bragson átta stig, tók níu fráköst og gaf tvær stoðsendingar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert