LeBron skrifaði undir hjá Lakers

LeBron James heldur kyrru fyrir í Los Angeles.
LeBron James heldur kyrru fyrir í Los Angeles. AFP/Sean M. Haffey

Körfuknattleiksmaðurinn reyndi LeBron James hefur samþykkt nýjan samning við LA Lakers og leikur því með elsta syni sínum Bronny í NBA-deildinni á næsta tímabili.

LeBron var laus allra mála en þótti líklegur til þess að endursemja, sem er nú orðin raunin.

ESPN greinir frá því að nýi samningurinn sé til tveggja ára og færir honum 104 milljónir bandaríkjadala í laun, sem jafngildir 14,5 milljörðum króna.

Getur LeBron sagt samningnum upp eftir eitt ár auk þess sem ákvæði er í honum um að Lakers geti ekki ákveðið einhliða að skipta honum til annars liðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert