Góður sigur á sterku liði Svíþjóðar

Drengjalandsliðið vann góðan sigur.
Drengjalandsliðið vann góðan sigur. Ljósmynd/KKI

Íslenska U16 ára landslið drengja vann góðan sigur á sterkum jafnöldrum frá Svíþjóð, 69:62, í öðrum leik liðsins á Norðurlandamótinu í körfubolta í Finnlandi í dag. 

Ísland tapaði fyrsta leiknum gegn Noregi en svaraði því í dag. Á morgun mætir liðið Eistlandi í þriðja leiknum af fimm. 

Ísland var tíu stigum yfir í hálfleik, 32:23, og í þeim seinni héldu Íslendingarnir út. 

Jakob Leifsson skoraði 18 stig, tók 12 fráköst og gaf átta stoðsendingar í liði Íslands. Róbert Óskarsson skoraði þá 15 stig, tók fjögur fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert