KKÍ gefst upp á kerfinu

Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ.
Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ. Eggert Jóhannesson

Körfuknattleikssamband Íslands, KKÍ, hefur ákveðið að hætta með mótakerfið GameDay. 

GameDay var tekið inn fyrir síðasta tímabil og olli miklum vobrigðum en kerfið stóðst engan veginn undir væntingum. 

Það var fyrir vikið erfiðara að finna tölfræðiupplýsingar en áður. 

Skipta í gamla kerfið 

Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, gaf frá sér fréttatilkynningu þess efnis í dag. 

Sambandið mun aftur reyna sig á FIBA Organizer-kerfið tímabunið. 

Tilkynning Hannesar í heild sinni:

Eins og flestum er kunnugt sem fylgjast með íslenskum körfubolta tók KKÍ upp nýtt mótakerfi frá GameDay síðastliðið haust og má í stuttu máli segja að sú innleiðing hafi gengið illa og er það svo að sambandið metur að best sé að hverfa frá innleiðingunni og endurmeta stöðuna. Ætlunin með nýju kerfi var að einfalda vinnu fyrir alla sem koma að skipulagi mótamála KKÍ og félaganna en því miður hefur það ekki gengið eftir. Það er mat KKÍ og ráðgjafa þess að FIBAOrganizer geti uppfyllt grunnþarfirnar í ákveðinn tíma og verður hafist handa strax við að greina betur þarfir og væntingar til nýs kerfis til að auðvelda vinnu og upplýsingagjöf til allra sem koma að körfuboltanum í landinu.

KKÍ mun skipa hóp einstaklinga sem er með reynslu úr tæknibransanum og eins með þekkingu á körfubolta til að vinna þessa vinnu . Eins að skoða hvað önnur sambönd í Evrópu eru að gera í mótakerfismálum og hvort það leynist eitthvað kerfi sem getur uppfyllt það sem FIBA Organizer gerir og auðvelt er að þróa áfram og hvaða lausnir sem uppfylla þarfir KKÍ eru til á markaðnum.

Á meðan þessi vinna fer fram þá mun KKÍ halda áfram að miðla tölfræðiupplýsingum og stöðu deilda/flokka á einfaldan máta eins og sambandið hefur verið þekkt fyrir síðustu áratugi ef frá er talið síðasta keppnistímabil.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert