Körfuknattleiksmaðurinn Sigvaldi Eggertsson er farinn frá Haukum og í 1. deildarliðið Fjölni.
Sigvaldi fer því úr úrvalsdeildinni í 1. deildina en hann hefur áður leikið með ÍR, KR og þá lék hann í tvö tímabil á Spáni.
Þetta er í annað sinn sem Sigvaldi kemur til Fjölnis en hann var á mála hjá félaginu tímabilið 2017 til 2018 áður en hann hélt til Spánar.